Up English Journals Videos Mountaineering
Hvannadalshnúksferð

Ingólfshöfðaferð Kajakferð Jöklaferð Gönguskíðaferð Sleðahundaferð Hvannadalshnúksferð Ísklifurnámskeið
 

Hvannadalshnúkur

Fjallaskíðaferð eða Fjallganga á Hæsta Tind Íslands


Komið niður af Hvannadalshnúk á fjallaskíðum.

    Fjallaskíðaferð á Hvannadalshnúk (2119 m) er áskorun sem enginn Íslenskur fjallamaður með sjálfsvirðingu lætur fram hjá sér fara. Þetta er erfið ferð en launin eru stórbrotið útsýni af Hnúknum ef veður leyfir og ótrúlega skemmtileg skíðaleið niður í bíl. Besti tíminn fyrir fjallaskíðaferðir er á veturna og fram að miðjum maí. Besti tíminn fyrir hefðbundnar göngur eru í maí og júní.
    Þar sem það er því miður ekki á allra færi að fara á fjallaskíðum á Hvannadalshnúk þá hef ég ákveðið að halda áfram að bjóða upp á gönguleiðsögn á Hvanndalshnúk eins og ég hef gert síðan 1994. En héðan í frá verður engum ókunnugum blandað saman í hópa, ef 7 menn bóka ferð hjá mér þá fer ég með þá 7. Ef einn maður bókar sig þá fer ég með hann einan.


Einar Sigurðsson á leið á Hvannadalshnúk vorið 2007.
bulletÁrstími allt árið
bulletGöngutími u.þ.b. 10-15 tímar
bulletHækkun/Lækkun 2000 metrar
bulletLengd 11 km hvora leið
bulletFjöldi 1 til 8
bulletVerð 45.000 fyrir einn viðskiptavin, 30.000 fyrir 2 viðskiptavini, 25.000 fyrir 3 viðskiptavini en 20.000 á mann fyrir 4 eða fleiri
Ef um vant fjallaskíðafólk er að ræða (annað hvort eru allir eða enginn á skíðum) þá gefum við 25% afslátt af þessum verðum).

     Góður fatnaður og gott gönguform er nauðsynlegt en ekki þarf að hafa reynslu í fjallaklifri eða jöklaferðum!

Útbúnaðarlisti vegna göngu á Hvannadalshnúk

Þú þarft að hafa:

bulletGóðan útivistarfatnað
bulletJöklabelti (klifurbelti) með karabínu. Við getum útvegað það og það er innifalið í verðinu
bulletÍsöxi & Brodda. Við getum útvegað það og það er innifalið í verðinu
bulletGóðan bakpoka sem hægt er að festa ísöxi á!
bulletSólgleraugu og sólarvörn
bulletNesti og drykk
bulletFjallaskíðabúnað ef þú ert á fara í fjallaskíðaferð á Hvannadalshnúk

Varðandi Fjallaskíðabúnað:

    Ef þú átt ekki fjallaskíðabúnað þá getum við útvegað þér hann. Athugaðu samt að 25% afslátturinn gildir bara fyrir þá sem nota eigin skíðabúnað.  Það er hægt að nota fjallaskíði, telemarkskíði eða snjóbretti í þessa ferð. Ef þú ert á snjóbretti þá þarftu annað hvort að vera á svona bretti sem hægt er að kljúfa í tvennt og setja skinn undir, eða vera með snjóþrúgur.
    Einnig er hægt að leigja fjallaskíðabúnað í Fjallakofanum í Hafnarfirði, Reykjavíkurvegi 64.

Varðandi fatnað:

    Jafnvel á hlýjum vordegi niðri í byggð geta verið vetraraðstæður uppi á Hvannadalshnúk. Það er því lífsnauðsynlegt að vera í skjólgóðum og hlýjum fatnaði. Bómullarbolir og gallabuxur eru bannvara í þessari ferð.
bulletBOLUR Hlýr nærbolur úr ull eða gerfiefnum + powerstrech peysa eða ullarskyrta + flísjakki  + vind/vatnsheldur stakkur með góðri hettu. Dúnúlpa/vesti eða hlý lopapeysa eða þykk flíspeysa í bakpokanum til öryggis.
bulletLEGGIR Göngubuxur eða föðurland + vind/vatnsþéttar utanyfirbuxur. (Athugið að vera ekki í bómullarnærbuxum).
bulletFÆTUR Göngusokkar, eða ullarsokkar. Ekki bómul! (Allt í lagi að hafa aukasokka í bakpokanum). Mæli með þunnum Liner sokkum til að forðast hælsæri eða sár framan á leggnum.
bulletHENDUR fingravettlingar + vind/vatnsheldir belgvettlingar.
bulletHÖFUÐ Ullar- eða flís húfa (og svo er auðvitað hettan á stakknum).
bulletANDLIT Skíðagríma eða lambhúshetta eða trefill. Sólarvörn nr 15-30.

Varðandi bakpoka:

    Hann þarf að vera nógu stór til að rúma nesti, drykk og mest af fatnaðinum ef við lendum í hásumar-hitaaðstæðum. Einnig þarftu að bera brodda og ísöxi, og á vissum köflum í sumum ferðum snjóþrúgurnar eða skíðin. Hafðu því pokann heldur stærri en minni. (35-40 líta poki nægir yfirleitt).
    Raðaðu í pokann þannig að neðst eru hlutir sem ekki geta brotnað, og þá getur þú setið á pokanum í snjónum þegar við stoppum til að borða. Þunga hluti er best að hafa næst bakinu miðjavega, og ég mæli með að setja allt sem ekki má blotna í plastpoka.

Varðandi sólgleraugu:

    Án einhverskonar sólgleraugna er mikil hætta á snjóblindu eftir daginn. Venjuleg sólgleraugu duga yfirleitt, en þau þurfa að vera með UV vörn. Auðvitað er best að vera með sérhæfð jöklasólgleraugu með hliðarvörnum, en það má líka nota skíðagleraugu.

Nesti og drykkur:

    Mjög mikilvægt er að hafa nóg að drekka! Lágmark tvo lítra. Stórt fólk jafnvel þrjá! Auðvitað er gott að hafa með að hafa heitt kakó á brúsa, en aðalatriðið er að hafa nóg af vökva. Reynið að setja sem heitast vatn í allar vatnsflöskur. Jafnvel er hægt að hita tilbúinn orkudrykk upp í örbylgjuofni til að hann sé heitur til að byrja með. Þetta kólnar allt á uppleiðinni.
    Ekki of mikið nesti hinsvegar. Hár stafli að samlokum gerir lítið annað en að þyngja pokann. Það er erfitt að koma í sig brauði í erfiðri göngu, sérstaklega þegar komið er upp á hájökulinn. Ég er t.d. bara með kelloggs orkustykki og þess háttar og í mesta lagi eina til tvær samlokur, stundum enga ef konan mín gleymir að smyrja fyrir mig :-). Fínt að hafa bland í poka með hnetum og súkkulaði og þess háttar, en gætið þess að sá poki sé ekki óþarflega þungur.
   
Ef þig vantar eitthvað af þessu þá finnur þú það í Fjallakofanum, bestu útivistarbúð landsins að mínum dómi.
Þar fást t.d. Black Diamond fjallaskíði, og Scarpa Fjallaskíðaskór og Marmot og Smartwool útivistarfatnaður.
Fjallakofinn er við Reykjavíkurveg 64 í Hafnarfirði.

   Í mínu starfi sem leiðsögumaður þá er algengt að ég þurfi að vera úti undir berum himni 12-14 tíma á dag, hvort sem verkefni dagsins eru nokkar ferðir í Ingólfshöfða eða að ganga með hóp á Hvannadalshnúk. Eins og gengur er veðurfarið á Íslandi misjafnt og sumir dagar eru stuttbuxnadagar en aðrir dagar eru rok og rigningardagar. Eftir að ég fór að klæða mig í MARMOT fatnað frá Fjallakofanum er ég hættur að kvíða fyrir hvaða veður ég fæ á morgun. Nú eru bara góðir dagar.

Einar Sigurðsson, fjallaleiðsögumaður Öræfaferða ehf.

Back Home Up Next

ÖRÆFAFERÐIR ehf    Kt.521203-3310
Phone: +354 8940894    Email: info@hofsnes.com    Mail: Hofsnes, 785 Oraefi, Iceland
 Last edited 04.11.2008