Up English Journals Videos Mountaineering
Ingólfshöfðaferð

Ingólfshöfðaferð Kajakferð Jöklaferð Gönguskíðaferð Sleðahundaferð Hvannadalshnúksferð Ísklifurnámskeið
 

Ferðaskrifstofur
Ljósmyndaraferðir

Sögu– og fuglaskoðunarferð í
friðlandið INGÓLFSHÖFÐA

    Flestir Íslendingar lærðu það í barnaskóla að Ingólfur Arnarson hafi tekið land í Ingólfshöfða og dvalið þar sinn fyrsta vetur á Íslandi árið 874. Ingólfshöfði er tvímælalaust einn af helstu sögustöðum Íslands.
    Friðlandið Ingólfshöfði er einnig afar auðugt af fuglalífi. Þúsundir sjófugla byggja höfðann og eru lundinn og skúmurinn mest áberandi.
    Það er Sigurður bóndi á Hofsnesi sem byrjaði með þessa ferð árið 1991, en Einar sonur hans, eða Matta tengdadóttir hans sjá orðið um flestar ferðirnar, enda er Siggi að orðinn 76 ára. Ekin er rúmlega 6 km leið yfir vötn og sanda á heyvagni og síðan er genginn 2-3 km útsýnishringur um höfðann. Gönguleiðin byrjar upp bratta sandöldu þar sem best er að taka því rólega, en uppi á höfðanum er mun auðveldara að ganga um. Við mælum ekki með að fara í ferðina ef fólk er ekki tilbúið að ganga hring með okkur, en það ætti að vera á flestra færi.

Við ábyrgjumst brottfarir fyrir einstaklinga og fjölskyldur á tímabilinu 5/5 til 18/8 2009

    Lagt af stað á mínútunni kl. 12:00 alla daga nema sunnudaga og kostar 2500 kr á mann þó að þátttakendur séu færri en 10 manns. Einstaklingar og fjölskyldur þurfa ekki að skrá sig í 12:00 brottförina, heldur geta bara mætt á bílastæðið 10 mínútum fyrir brottför. Fyrir 5/5 og eftir 18/8 er betra að hringja í Einar í síma 8940894 til að athuga um þátttöku.

bulletBrottför alltaf kl. 12:00 (frá 5/5-18/8) alla daga vikunnar nema sunnudaga).
bulletTími u.þ.b. 2 1/2 klst
bulletVerð sumarið 2009 2500 kr á mann (frítt fyrir börn 12 ára og yngri í fylgd foreldra).
bulletHópar 10-110 manna hópar geta bókað sig kl. 9:00, 12:00 eða 15:00 sex daga vikunnar frá byrjun apríl til loka október. Hópafsláttur er 10% fyrir 11 og fleiri. Ferðaskrifstofur sem selja fyrir okkur ferðina fyrirfram fá sölulaun. Sjá nánari skilmála hér.

Lundar framan við vitann í Ingólfshöfða. Oftast er hægt að sjá lunda í Ingólfshöfða frá miðjum apríl fram í miðjan ágúst.

Home Up Next

ÖRÆFAFERÐIR ehf    Kt.521203-3310
Phone: +354 8940894    Email: info@hofsnes.com    Mail: Hofsnes, 785 Oraefi, Iceland
 Last edited 04.11.2008