|
| |
Ljósmyndaferðir
Við bjóðum uppá sér brottfarir
klukkan 6:00 á morgnana eða klukkan 19:45 á kvöldin. Þetta hentar sérhæfðum
ljósmyndahópum sem þurfa meiri tíma til að stilla upp búnaði sínum en
almennur ferðamaður. Við einbeitum okkur að ljósmyndun í
þessum ferðum, svo við förum styðstu leið til fuglanna og sleppum öllum
söguútskýringum. Verð 2009 í þessum ferðum er 5000 kr. á mann, og lágmark 8 þátttakendur (eða
40.000 kr
ef færri eru í hópnum). Þeir hópar sem kjósa morgunbrottför leggja af stað
til baka ekki seinna en 8:20.

Vinsamlega athugið að í öllum okkar ferðum gætum við þess að
ónáða ekki fuglana að nauðsynjalausu, og við pössum að dvelja ekki of lengi á
einum stað, svo að við förum fram á góða samvinnu þátttakenda í sérferðum.
|