Up English Journals Videos Mountaineering
Jöklaferð

Ingólfshöfðaferð Kajakferð Jöklaferð Gönguskíðaferð Sleðahundaferð Hvannadalshnúksferð Ísklifurnámskeið
 

Ísferð - J auðveld

Jökla-upplifunarferð og ísklifur á Svínafellsjökli


Svínafellsjökull í Febrúar.

    Í þessari ferð ökum við að skriðjökli, spennum á okkur mannbrodda og með ísöxi í hönd göngum við u.þ.b. 2 km hring um jökulinn með leiðsögn. Kennd eru undirstöðuatriði í notkun mannbrodda og ísaxa, og rætt er um jökla, hegðun þeirra og sögu.

    Þeir sem vilja fá einnig að reyna sig við ísklifur. Við notum klifurlínur og ísklifurútbúnað til að tryggja fullkomið öryggi klifrarans. Engin sérstök reynsla eða líkamlegir burðir eru nauðsynlegir, bara svolítill kjarkur!


Ísklifur í Svínafellsjökli í apríl.

Í Svínafellsjökli í júní.
bulletÁrstími 10/10 - 24/4 (ekki sunnudaga)
bulletÚtbúnaður sem Öræfaferðir útvega broddar, ísöxi, hjálmur og klifurbelti
bulletFjöldi 1 til 8 manns*
bulletTími 2-3 klst
bulletVerð 12.500 fyrir einn viðskiptavin, 7500 fyrir 2 viðskiptavini, 6000 fyrir 3 viðskiptavini en 5000 á mann fyrir 4 til 8
* Ef þið eruð 9-16 saman getum við boðið einfaldari útgáfu af þessari ferð, þar sem við sleppum klifrinu. Verð á þessari útgáfu er 4500 kr, lágmark 3 þátttakendur.
    Til að fara með í þessa ferð verður þú að vera í gönguskóm vegna þess að við göngum á mannbroddum á jöklinum. Ef þú ert ekki með gönguskó, láttu okkur þá vita fyrirfram. Öræfaferðir eiga gönguskó til láns í öllum stærðum.

    Svínafellsjökull er u.þ.b 900 metra norðan við Hótel Skaftafell í Freysnesi. Ath. Hótel Skaftafell er 5 km fyrir austan þjóðgarðinn í Skaftafelli. Við mælum okkur vanalega mót við viðskiptavini okkar þarna á bílastæðinu.

    Athugðið að yfirborð skriðjökla á Íslandi breytist mikið eftir árstíma. Venjulega er jökullinn hvítur, mjúkur og auðveldur til göngu á vorin, og verður meira og meira grár og svartur á sumrin þegar sandur og leir verður eftir á yfirborði hans þegar hann hefur bráðnað um marga metra. Frá nóvember og fram í mars er jökullinn hins vegar blár og mjög sleipur til að ganga á, og þá getur staðan verið sú að einn leiðsögumaður getur bara farið með 2 viðskiptavini í senn á jökulinn. Verið samt endilega í sambandi þó þið séuð fleiri saman, oft er hægt að fara t.d. í ísklifur eða skoða íshella, án þess að fara gönguhring um jökulinn.

Back Home Up Next

ÖRÆFAFERÐIR ehf    Kt.521203-3310
Phone: +354 8940894    Email: info@hofsnes.com    Mail: Hofsnes, 785 Oraefi, Iceland
 Last edited 04.11.2008