Up English Journals Videos Mountaineering
Gönguskíðaferð

Ingólfshöfðaferð Kajakferð Jöklaferð Gönguskíðaferð Sleðahundaferð Hvannadalshnúksferð Ísklifurnámskeið
 

Snjóferð - K ekki mjög erfið

Gönguskíðaferð á Vatnajökli

    Í þessari ferð byrjum við á að aka upp í Jöklasel, (veitingarstað/gistiskála í 800 metra hæð við Skálfellsjökul). Vegurinn þangað liggur úr Suðursveit, rétt austan við Smyrlabjörg. Við stígum á gönguskíðin við Jöklasel, og göngum 9 1/2 km á Vatnajökli að tindinum Brókarbotnstindi /1300m) sem gnæfir yfir Kálfafellsdal. Þaðan er stórbrotið útsýni niður í djúpa dali, yfir á hæstu tinda og að sjálfsögðu yfir Vatnajökul sjálfan.
    Bakaleiðin er auðveldari vegna þess að þá erum við að lækka okkur allan tíman niður í Jöklasel.

bullet

Árstími mögulegt 4/4 - 6/6 (ekki sunnudaga)

bullet

Við útvegum skíði, skó og skíðastafi

bullet Hópstærð 1-8 manns
bulletTími 6-8 tímar
bulletVerð 30.000 fyrir einn viðskiptavin, 20.000 fyrir 2 viðskiptavini, 15.000 fyrir 3 viðskiptavini en 12.500 á mann fyrir 4 til 8

Snjóferð - K frekar auðveld
með aðstoð Jöklajeppa

    Önnur vinsæl útgáfa af Snjóferðinni er að fá aðstoð Jöklajeppa til að komast að Brókarbotnstindi og ganga bara bakaleiðina á skíðunum. Við Jöklasel stígum við um borð í sérútbúna jeppa Jöklajeppa og þeir aka með okkur 9 1/2 km leið á Vatnajökli. Við Brókarbotnstind skilja jepparnir okkur eftir og við gönguskíðum 9 1/2 km leið til baka að Jöklaseli.
    Þessi útgáfa Snjóferðarinnar hentar vel þeim sem ekki hafa mikla reynslu af gönguskíðum, eða langar einfaldlega að prófa að fara í ferð með sérútbúnum jöklajeppum í leiðinni.

bullet

Árstími mögulegt 4/4 - 6/6 (ekki sunnudaga)

bullet

Við útvegum skíði, skó og skíðastafi og Jöklajeppa

bullet Hópstærð 3-8 manns
bulletTími 4 - 5 tímar
bulletVerð 17.500 kr á mann
     Athugið að stundum er vegurinn upp í Jöklasel ófær um vetrartímann, en í staðin getum við stundum farið í gönguskíðaferðir á láglendi suðausturlands.

Back Home Up Next

ÖRÆFAFERÐIR ehf    Kt.521203-3310
Phone: +354 8940894    Email: info@hofsnes.com    Mail: Hofsnes, 785 Oraefi, Iceland
 Last edited 04.11.2008