Íslenska English Journals Videos Mountaineering Sled Dogs
Íslenska


 

Ingólfshöfðaferð
Kajakferð
Jöklaferð
Gönguskíðaferð
Hvannadalshnúksferð

Afþreying á Suðausturlandi Allt Árið!

Öræfaferðir

    bjóða margskonar ferðir allan ársins hring fyrir fólk sem upplifa vill jökla, fjöll og firnindi Öræfa og Íslands, fótgangandi, á skíðum, snjóþrúgum eða jafnvel með aðstoð brodda og ísaxa. Takmarkið getur verið stutt jökla-upplifunarferð á Svínafellsjökul, gönguskíðaferð á Vatnajökul, eða fjallaskíðaferð á hæsta tind Íslands Hvannadalshnúk eða aðra fjallatinda Íslands. Einnig bjóðum við ísklifurnámskeið, klettaklifur, og fjallaskíða eða gönguskíðaleiðangra. Viðskiptavinir okkar hafa verið allt frá nemendum úr grunnskólum landsins upp í heimsfræga fjallaklifrara.
    Vinsælasta ferð Öræfaferða er þó fuglskoðunar- og söguferð í friðlandið Ingólfshöfða en þangað förum við með um 5 þúsund manns á ári. Svo erum við byrjuð með auðvelda og byrjendavæna Kajakaferð að auki.


Einar á Hvannadalshnúk í 222 skipti 10. maí 2007.

    Ég heiti Einar Rúnar Sigurðsson og rek ásamt eignkonu minni Matthildi Unni Þorsteinsdóttur, og föður mínum Sigurði Bjarnasyni, ferðaþjónustufyrirtækið Öræfaferðir. Við búum á bænum Hofsnesi í Öræfum. Faðir minn byrjaði með sínar ferðir árið 1991, eftir að hann hætti hefðbundnum búskap en fann ný not fyrir heykerruna sína; að flytja fólk út í friðlandið Ingólfshöfða.
    Ég fylgdi í fótspor hans árið 1994 og byrjaði að fylgja fólki upp á Hvannadalshnúk, hæsta tind Íslands. Núna hef ég staðið 232 sinnum á toppnum (síðan 3. maí 2008) og á því heimsmetið þar.
    Síðan við giftumst árið 2000 hefur konan mín, Matta, einnig verið með í ferðum og nú sér hún um mikinn hluta ferðanna í Ingólfshöfða ásamt mér. Faðir minn, Sigurður er að verða 75 ára og hann er farinn að taka því rólega, en um leið og hann er að hætta þá er þriðja kynslóðin að byrja að taka þátt, því Aron Franklín, elsti sonur okkar (fæddur 1991), mun hjálpa til við ferðirnar í sumar.

Við bjóðum ferðir allt árið, alla daga vikunnar nema sunnudaga!

    Forstjóri Öræfaferða (Guð) sagði okkur að erfiða og vinna allt okkar verk sex daga vikunnar en þann sjöunda mættum við hvíla okkur og njóta lífsins. Þetta stendur meira að segja í handbók Öræfaferða (sem er Biblían) á bls. 77 (2Mós 20:8-11). Reyndar erum við (Matta og Einar) pastorar Hvítasunnukirkjunnar á Höfn og þar sem það er vaxandi starf þá biðjum við ferðaskrifstofur og aðra að sýna okkur þann velvilja að skipuleggja ekki ferðir með okkur á sunnudögum.

Ekki hika við að hafa samband!

* Öræfaferðir - Hofsnes - 785 Öræfi
( Einar 8940894
Netfang:
info@hofsnes.com
Veffang: www.hofsnes.com

Ef þig vantar gistingu eða aðra þjónustu hér í Öræfum kíktu þá á www.oraefi.is
Góð síða um suðausturland www.vatnajokull.is
Ef þú ert að leita að vélsleða eða jöklajeppaferðum farðu þá á www.glacierjeeps.is
Vefur Íslenska Alpaklúbbsins er www.isalp.is
Fyrir leit af allskonar þjónustu um allt land prófaðu www.market.is 

Home

Phone: +354 8940894    Email: info@hofsnes.com    Mail: Hofsnes, 785 Oraefi, Iceland
Last edited 31.07.2008